Ferdalangur’s Weblog

Just another WordPress.com weblog

Hvað er ég eiginlega að LÆRA?

Þegar ég var úti í Tékklandi síðasta haust og bloggaði fyrir Bifröst á heimasíðu háskólans benti mamma mér á það, ansi seint á önninni, að ég hafði víst aldrei skrifað neitt um það sem ég var að læra eða gera í skólanum.

Þeir sem voru ekki alveg vissir um hvað ég hef eytt síðustu tveimur árunum í að læra þegar ég útskrifaðist núna í september geta varpað öndinni léttar – ég er ekki í þremur fögum lengur. Ég er bara í Evrópufræði, sem er mun einfaldara að muna, ekki satt? (Fyrir þá sem þurfa á áminningunni að halda, þá útskrifaðist ég frá Bifröst með BA gráðu í Heimspeki, Hagfræði og Stjórnmálafræði.)

Ég er í alveg helling af fögum þessa önnina. Mér heppnaðist alveg stórvel að finna valfög, og er alveg hæstánægð með þau öllsömul. Hvað varðar skyldufögin eru þau flest skemmtileg, en fara mikið eftir kennurunum, samt.

Ég er bara í einum tíma á bæði mánudögum og þriðjudögum og mánudagstíminn er tékkneska. Ég er í alveg hrikalega erfiðri tékknesku, en mér finnst ég þó allavegana vera að læra eitthvað, ólíkt því hvernig mér leið í Brno.

Á þriðjudagsmorgnum rétt fyrir tíu er ég svo í sögu A-Evrópu eftir 1945, sem er alveg hrikalega áhugaverður áfangi. Ég hef töluverða þekkingu á efninu núþegar, en hann fer nánar ofan í saumana á öllusaman, þannig að mér finnst ég loksins hafa eitthvað vit á hlutunum, ekki bara svona lauslegar hugmyndir.

Á miðvikudögum mæti ég í skólann klukkan 9.45. Fyrsti tíminn er í félagshagfræði. Ég er ekki búin að fara nema í tvo svoleiðis tíma – kennarinn er mikið upptekinn – en mér líst ágætlega á hann. Það er hinsvegar pínu fyndið að kúrsinn er í grundvallaratriðum nánari skoðun á efninu sem ég tók fyrir í BA ritgerðinni minni, og er um alla A-Evrópu, ekki bara Tékkland og Slóvakíu. Sem gerir það að verkum að ég þarf stundum ekki að lesa heima þar sem ég hef þegar lesið greinarnar, og að meðan skólafélögunum finnst þessi kúrs í erfiðara lagi þykir mér hann frekar einfaldur. Hagfræðin kemur til bjargar! Svo er ég í pásu þangað til rétt eftir eitt, þegar ég fer aftur í tékknesku. Á eftir tékkneskutímanum á ég svo að vera í kúrsi í Evrópupólitík og Evrópusambandinu, en kennarinn þar er jafnvel enn uppteknari en kennarinn í félagshagfræðinni – ég er bara búin að fara í einn tíma. Þessi kúrs verður því væntanlega á einhverju flakki um stundatöfluna mína.

Fimmtudagar eru verstu dagarnir mínir. Þá er ég í skólanum allan heila daginn. Það hjálpar að uppáhaldstíminn minn er fyrst um morguninn, eða klukkan 08.00 – hann er í átökum og þróunarmálum, og er kenndur í raunvísindadeildinni. Kennarinn í þessum kúrsi er æðisleg, og kúrsinn er alveg hrikalega áhugaverður í alla staði. Get ekki útskýrt nákvæmlega af hverju. Hef samt grun um að það verði ekki hægt að rífast við mig þegar hann er búinn :D Ég er svo í tveimur tímum í Evrópumenningu beint á eftir þessum tíma. Evrópumenningin er kennd í heimspekideildinni, hinum megin í bænum svo það er mikilvægt að geta haskað sér þegar tíminn er búinn. Í dag var ég að flýta mér svo mikið að ég gleymdi svarta treflinum mínum, og hef grun um að ég muni aldrei sjá hann aftur. Búúú. Ég ætla að gá á morgun, en líkurnar eru ekki góðar, því hér eru umkomulausir hlutir bara teknir og notaðir af þeim sem finnur þá fyrst.

Evrópumenningin er skemmtileg, en svolítið þung. Henni er skipt upp eftir tímabilum, svo ég er í seinni tíma Evrópumenningu fyrst, og Evrópumenningu miðalda svo – sem mér þykir reyndar dálítið öfugsnúið. Það er líka yfirleitt brjálað að lesa fyrir þessa tíma.

Síðan fáum við hádegishlé, sem betur fer.

Eftir hádegishléið – sem er reyndar vel útilátið, heilir tveir tímar – erum við í Listasögu. Þetta er eini kúrsinn sem er hreint út sagt leiðinlegur. Hann er svo leiðinlegur að fólk er víst til að sofna. Kennarinn eyðir fyrst lööööngum tíma í að tala um súlur. Svo talar hann um bogaglugga. Sem er yfirleitt haldið upp af súlum, svo hann þarf að tala aðeins meir um súlur. Svo sýnir hann okkur slidesmyndir og bendir okkur á súlur á þeim. Eða bogagluggana. Reyndar hélt hann langan fyrirlestur í dag um það að listamenn á miðöldum hafi ekki verið eins klárir og listamenn í Rómaveldi. Svo sýndi hann okkur svona tuttugu slidesmyndir af miðaldabyggingum með súlum, og útskýrði að súlurnar hafi verið vegna þess að á miðöldum vildi fólk herma eftir Rómverjum. Ég held að það sé erfitt að finna tímabil í mannkynssögunni þar sem fólk vildi EKKI herma eftir Rómverjum, en ok. Allavega var trikkið með þessar myndir að það voru engir bogar á milli súlnanna, því einhvernveginn gleymdu arkitektarnir á miðöldum hvernig maður býr til boga. Þannig að til að herma eftir Rómverjunum tóku iðnaðarmenn miðalda súlur einhversstaðar annarsstaðar og notuðu þær í ný hús.

Þetta voru semsé ENDURUNNAR SÚLUR.

Þetta verður fremur þreytandi til lengdar. Samt gaman að sjá að iðnaðarmenn hafa ekkert breyst í gegnum aldirnar.

Þegar listasagan er búin og ég er búin að fá mér sterkan kaffibolla tekur svo tími í Göldrum og Nornaofsóknum við. Kennarinn í þessum tíma er mjög skemmtilegur og segir mjög lifandi frá. Það er alveg hrikalega gaman bara að sitja og hlusta á það sem hann segir. Þetta er líka alveg rosalega áhugavert efni. Í dag töluðum við um presta og svolítið galdra-lega ritúala í kirkjum. Ég er búin í þessum tíma klukkan sex, svo allt í allt er ég tíu tíma í skólanum á fimmtudögum.

Sem betur fer er ég ekki í neinum tímum á föstudögum. Bæði vegna þess að ef ég þyrfti að vakna snemma, eftir fimmtudagstörnina, yrði ég örugglega geðveik, og líka vegna þess að það gefur mér einn dag þar sem ég þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af tímasetningum og get bara verið í útréttingum – eða á ferðalögum.

Dagskráin fyrir morgundaginn mælir reyndar fyrir um það fyrrnefnda. Það er stefnt á bankareikning, fjárfestingu í buxum – eða allavega góðum sokkabuxum svo pilsin komi að notum þegar kólnar – og hugsanlegum matarinnkaupum fyrir helgina. Annars er engin stefna á helginni – mig langar að ferðast en ég veit ekki hvert. Einhverjar hugmyndir?

Kv. Elínin.

október 18, 2007 Höfundur: ferdalangur | fréttir | , | No Comments Yet