Ferdalangur’s Weblog

Just another WordPress.com weblog

Ég neita að vera verri bloggari en bróðir minn.

Jæja gott fólk.

Þegar ég skrifaði síðustu færslu – í tilefni af því að maí átti bráðum að vera búinn – var ég svona á mörkunum með það að fara á límingunum. Ég var alltaf búin að tala um að það myndi hægjast aðeins um hjá mér í lok maí, og þá ætti ég að geta farið að taka lífinu með aðeins meiri ró.

Í stuttu máli sagt var þetta algerlega kolbandvitlaust hjá mér. Júní herti þumalskrúfurnar á okkur, ef eitthvað var.

Það er alltaf frekar strembið að byrja svo að skrifa eftir svona langa pásu. Um hvað á maður að tala? Allt sem gerðist í millitíðinni? Hvað ef það sem gerðist í millitíðinni er eitthvað sem best er að útskýra með eftirfarandi grafi:

Semsé: Ritgerðir. Og fleiri ritgerðir.

Svo ég hlakkaði vitanlega til þess að fara til Kraká. Þó Kraká væri ráðstefnuferð á vegum Evrópufræðaprógrammsins í heild sinni vissi ég að það yrðu skoðunarferðir, og ég myndi hitta fólk sem ég hafði ekki séð síðan í Olomouc og það yrði ógeðslega gaman. Og þó að þetta væri vinnuferð hlyti að vera einhver frítími, og ferðin myndi allavega vera tilbreyting.

Tímanotkun nemanda í Evrópumenningarfræði í Kraká er best sýnd með ÞESSU grafi:

Og það var alveg sama hvað maður reyndi: Maður þurfti alltaf að taka þrjár sturtur – það var ÓGEÐSLEGA HEITT – það var alltaf biðföð eftir kaffi, það var alltaf hæg þjónusta á öllum veitingastöðum, og það voru alltaf vandræði að finna leigubíl.

Ég er, í stuttu máli sagt, enn að jafna mig.

Auðvitað er meira frá Kraká að segja en að útskýra að þegar maður var ekki að gera eitthvað var maður að hlaupa á milli staða. En ég er að hugsa um að setja það í sérpóst. Með myndum. Semég tók á myndavélina, en bjó ekki til í Excel…

En svona til að gefa ykkur forskot á þennan planaða myndapóst ætla ég að pósta hér eina mynd alveg sérstaklega fyrir föður minn:

Snjallir lesendur geta líka elt þennan link aftur á myndasíðuna mína, sem er hér

júlí 9, 2008 - Höfundur: ferdalangur | Uncategorized | , , | 7 Ummæli

7 Ummæli »

  1. Það vantar á grafið “tíminn sem það tók að búa til graf um hvað ég eyddi tímanum mínum í…” :D Blogga oftar takk fyrir.

    Ummæli af Matti | júlí 9, 2008

  2. Hey, það stendur að þetta sé tíminn sem ég notaði í maí/júní. Lesa almennlega, takk. Það er aðeins minna að gera hjá mér núna :)

    Ummæli af ferdalangur | júlí 9, 2008

  3. Mér verður illt í fótunum að sjá allar þessar kaffibiðraðir.

    Ummæli af Inga Þóra | júlí 9, 2008

  4. Regla #1 í flestum stórum campusháskólum: Það er alltaf biðröð í kaffi.

    (Regla #2 í flestum stórum campusháskólum: Það er alltaf partí á kvöldin. Einhversstaðar.)

    Ummæli af ferdalangur | júlí 9, 2008

  5. Það vantar á grafið hvað það tók langan tíma að drekka svona stóra bjóra og að skila þeim. Gaman að sjá það er komið nýtt blogg. Ekki gefast upp…..

    Ummæli af Elli | júlí 10, 2008

  6. Sæl Elín.
    Loksins heyrir maður frá þér – vertu nú dugleg að blogga það er svo gaman að lesa .. já og flottar myndir.
    Hlakka til að sjá þig 26. júlí.
    Knús Guðný Lára
    ps Heldurðu að við getum fengið svona stóra bjóra í London? :)

    Ummæli af Guðný Lára | júlí 15, 2008

  7. Hæbb. ekki gefast upp með bloggið.
    sbp

    Ummæli af SBP | júlí 20, 2008


Skrá ummæli