Ferdalangur’s Weblog

Just another WordPress.com weblog

Sagan endurtekur sig?

Símtal við móður mína, 18. apríl 2003.

Elín: Ykkur getur ekki verið alvara. Lóð?
Mamma: Hún er á rosafínum stað í Hafnarfirði. Akkúrat niðri í miðbæ.
Elín: Þið gerið ykkur grein fyrir því að ef að þið kaupið lóð verðið þið að byggja annað hús.
Mamma: Þetta er nú bara svona til gamans gert, það eru engar líkur á að við fáum þetta. Við erum bara að sjá hvað gerist.
Elín: Langar ykkur virkilega að eyða næstu milljón árum í áframhaldandi byggingarvinnu?


Símtal við móður mína, 18. ágúst 2008.

Elín: Ég trúi ekki að þið hafið gert tilboð. Þið eruð galin.
Mamma: Þetta er náttúrlega gamall sumarbústaður, það væri gaman að eiga heima þarna, flottur staður.
Elín: Já, en er húsið ekki ónýtt? Pabbi sagði það. Ætlið þið að byggja annað hús?
Mamma: Þetta er nú bara svona til gamans gert, það eru engar líkur á að við fáum þetta. Við erum bara að sjá hvað gerist.
Elín: … ég hef heyrt þennan áður.


Ég held að foreldrum mínum vanti eitthvað þægilegt og róandi hobbí, eins og fallhlífarstökk eða rallíakstur.

ágúst 20, 2008 - Höfundur: ferdalangur | Uncategorized | | 3 Ummæli

3 Ummæli »

  1. Jú okkur vantar sannarlega þægilegt róandi hobbý, eins og t.d. barnabörn ! kv. P og M

    Ummæli af SBP | ágúst 24, 2008

  2. Ég talaði við mömmu þína í dag – hún tók þig á orðinu og er búin að panta tíma í fallhlífarstökk … en veit ekki hvað pabbi þinn ætlar að gera :)
    En þú veist að þau eru ofvirk, er það ekki?
    kv. gl

    Ummæli af GLP | ágúst 24, 2008

  3. Hæ, Hvar er meira blogg ?? Maður heyrir svo sjaldan frá þér.
    kv. gl

    Ummæli af Nafnlaus | september 8, 2008


Skrá ummæli