Ferdalangur’s Weblog

Just another WordPress.com weblog

Hehem.

Elín Arna Ellertsdóttir lýsir eftir eftirfarandi hlutum sem hafa á einhvern óskiljanlega hátt glatast henni:

  1. Nóvembermánuði. Hann lét ekki sjá sig í Göttingen þetta árið.
  2. Svartri prjónahúfu úr flauelsgarni.
  3. Skammtímaminni. Til þess sást síðast í júní 2007, á Bifröst, Íslandi.
  4. Grein sem ég las haustið 2006 um NATO og framtíð þess. Allar vísbendingar um hvar hún gæti verið niðurkomin á harðadisknum mínum eru vel þegnar.
  5. Bók eftir Joe Hill sem heitir “Heart Shaped Box” – Besta bók sem ég hef lesið lengi en hún hefur á einhvern dularfullan hátt horfið úr bóka… uh… hrúgunni minni. (Á ekki bókahillu.)
  6. Skipulagsgáfa – hefur sennilega misfarist og orðið eftir á Kárahnjúkum hér um árið.

Ennfremur óskast keypt, ódýrt:

  1. Jólaskap – kemst ekki almennilega í það árin sem ég baka ekki smákökur.
  2. Sjálfsagi og einbeiting – ATH: Framtaksleysi og frestunarárátta fæst gefins á sama stað.
  3. Evrur og/eða sterlingspund.
  4. Eyðieyja í Karabíska hafinu
  5. Þolinmæði – helst ónotuð
  6. Almennileg vekjaraklukka sem lifir af samvistir við undirritaða lengur en 3 mánuði í senn. Hún þarf sennilega að vera hönnuð af NASA.

Kveðja,

Elín

desember 3, 2008 - Höfundur: ferdalangur | Uncategorized | | 3 Ummæli

3 Ummæli »

  1. hæbb rúsina. Sko ég get lánað þér þolinmæði, að vísu ekki ónotuð en lítið notuð eftir að “sumir” urðu stórir og fluttu til útlanda. Jólaskap get ég gefið þér því það hef ég ekki notað í mörg ár ! Svo á ég líka mikið notaðan valkvíða sem þú mátt eiga :) Hlakka til að sjá þig. Við bara skiptumst á að nota þolinmæðina frá 22 des til 6 jan. Kv.sbp

    Ummæli af sbp | desember 9, 2008

  2. þú getur enn bakað smákökur fyrir jól kemurðu ekki annars þann 22des hvað ætlarðu að gera þann 23.Og þetta með eyðieyjuna má hún ekki vera í Atlantshafinu ég veit um eina sem allir eru að yfirgefa vegna kreppunar.Hlakka til að sjá þig
    Kveðja. Elli

    Ummæli af Elli | desember 11, 2008

  3. Ég missti af þessu bloggi .. það þarf líka að baka smákökur á þessu heimili og hér er alltaf vakað til ca 4 á nóttunni síðustu daga fyrir jól – svo þú hefur fullt af tíma …
    Því miður á ég ekki ónotaða þolinmæði til að selja þér, hún er uppurinn í nemendur sem eru í rófu og rassi með verkefnin sín :) kv. gl

    Ummæli af Guðný Lára | desember 13, 2008


Skrá ummæli