Ferdalangur’s Weblog

Just another WordPress.com weblog

Jólajóla.

Nau nau nau. Tveir póstar á tveimur vikum, hvað er að ske?

Nú fer að styttast í jólin. Fólk er stöðugt að minna mig á það, sem gerir það að verkum að ég er í næstum stöðugu taugaáfalli yfir öllu sem ég þarf að klára áður en ég kem heim. Ég fékk þá brilliant hugmynd að reyna að búa til sem flestar jólagjafir þetta árið, en við sjáum til hvernig það fer… það eru víst ekki nema 24 klst í sólarhringnum. Stefnan er tekin á að búa sem flestar til um helgina og sjá svo hvernig staðan er með restina.

Svo er búið að setja upp jólamarkað hér í Göttingen. Þetta er mér frekar óhagstætt vegna þess að ég neyðist til að hjóla í gegnum hann á leiðinni heim, sem er í fyrsta lagi stórhættulegt því fólk er ekkert að athuga hvert það er að fara, og í öðru lagi dýrt, því það er svo góð lykt af öllum óholla matnum sem er í boði þar…

Í dag fór ég með skrifstofufólkinu á jólamarkaðinn í Gluhwein-drykkjuferð (Gluhwein = heitt, kryddað vín, ekkert líkt jólaglöggi, nb.). Það var skemmtilegt en kalt, og nú er ég búin að borða svo mikið af óhollum mat að ég get varla hreyft mig. Og svo varð maður að halda áfram að drekka Gluhwein því það var eiginlega eina leiðin til að halda á sér hita.

Að öðru leyti heldur lífið bara áfram. Ég hélt framsögu um efnahagsaðlögun A-Evrópulandanna eftir inngöngu í Evrópusambandið – sem eru svosem troðnar slóðir fyrir mig, en gerðu það að verkum að ég gat komið af stað líflegum umræðum meðal nemendanna.

Nemendurnir halda svosem áfram að kvarta – og þau kvarta yfir ÖLLUM HUGSANLEGUM OG ÓHUGSANLEGUM HLUTUM. Trúið mér ekki, eða haldið að ég sé að ýkja? Hér er smá dæmi:

Þegar ég fer yfir heimildaskárnar þeirra til að sjá hvort þau hafa skráð rétt geri ég alltaf svona “ok” merki við hliðina á öllum réttum færslum, svona “check!”

Um daginn kvörtuðu nemendurnir yfir því að merkin mín væru of stór.

Sumt fólk er ekki hægt að gera ánægt.

Inga Þóra, þegar ég var að barma mér yfir þessu, sagði að nemendurir hljómuðu eins og þau réðu ekki við neitt flóknara en litabækur. Ég sé það fyrir mér:

“Í dag ætlum við að læra um EVRÓPUSAMBANDIÐ. Það er mjög FLÓKIÐ. Litið Evrópusambandslöndin fimmtán með RAUÐUM LIT, löndin sem bættust við 2004 og 2007 með GRÆNUM LIT, löndin sem stefna að því að ganga í sambandið með GULUM LIT og öll önnur lönd með BLÁUM LIT. OK? Nei, þið þurfið ekki að lita sjóinn, já ég veit að sjórinn er blár, OK OK ÞIÐ MEGIÐ LITA HIN LÖNDIN FJÓLUBLÁ, OK…”

Að öðru leyti eru þau ósköp ágæt greyin. Verst þykir mér að horfa upp á hópinn sem ákvað að gera rannsóknarritgerð um efnahagsinnlimun A-Evrópuríkjanna án þess að skrifa um beinar erlendar fjárfestingar, útflutnings- og innflutningshlutfall, fjármagnsflæði eða gengi gjaldmiðla. Mig grunar að annað hvort verði þetta frekar skondið, eða tímamótaverk sem endurmótar hagfræði eins og við þekkjum hana.

Annars er ég að fara til London á miðvikudaginn. Eeeeek, ég er ekki andlega tilbúin til þess að halda jól, aðallega vegna þess að ég gæti svo svarið það að það sé ennþá október. En ég hitti Matta í London, og Julianne vinkonu mína, og það verður æðislegt.

Ég hlakka líka frekar mikið til að koma heim – verst ég verð svo stutt. En ég ætti samt að ná að segja hæ við alla… vinsamlegast panta tíma í kommentakerfinu, takk :D

desember 13, 2008 - Höfundur: ferdalangur | Uncategorized | | 4 Ummæli

4 Ummæli »

  1. Sæl Elín.
    Þú athugar að það má EKKI leiðrétta með rauðu .. það er kennt í Kennaraháskólanum, það er talið svo mikið sjokk fyrir nemendur ef þeir sjá of mikið rautt !! (kannski gætu þeir ráðist á kennarann..)
    Og veistu, ég geri pínulítinn svartan punkt undir þau svör sem eru rétt!! og pínulítil svört vöff ef svarið er rangt…
    Alltaf að láta sálarheill nemenda ganga fyrir :)
    Oo hvað ég hlakka til að hitta ykkur systkinin og ég ætla ekkert að panta tíma, ég ætla að hita þig á aðfangadag (kannski), jóladag (örugglega), gamlársdag (örugglega) og einhverja fleiri daga (örugglega) Kveðja og góða ferð heim.
    gl

    Ummæli af Guðný Lára | desember 13, 2008

  2. Góða ferð og góða skemmtun í London. Sjáumst heima…. sbp

    Ummæli af sbp | desember 15, 2008

  3. Þessir nemendur. Skemmtu þér vel út í London. Hlakka til að hitta þig þegar þú lendir á klakanum.

    Ummæli af Inga Þóra | desember 15, 2008

  4. hæ hlakka til að sjá þig eftir hva.. viku eða svo? :)
    -Lily

    Ummæli af Lilja Írena | desember 17, 2008


Skrá ummæli