Meistaranemi í Evrópumenningarfræðum við Palacký Háskóla í Olomouc í Tékklandi og Georg-August Háskóla í Göttingen í Þýskalandi.
Er staðsett í Þýskalandi eins og stendur en hefur ekki minnstu hugmynd um hvar hún endar þegar önninni lýkur (enda alger óþarfi að skipuleggja lengra fram í tímann en þrjá mánuði...) Býr í 3 manna 'Wohnungsgemeinschaft' í Südstadt í Göttingen, í 13 fermetra herbergi sem inniheldur 1 dýnu, 1 skáp, 1 mjög stóra ferðatösku og 1 skrifborðsstól. Stefnir á að eignast skrifborð á næstu dögum. Og reiðhjól.
Forfallinn tölvusjúklingur með brennandi áhuga á ævintýrum, uppskálduðum og raunverulegum.