Ferdalangur's Weblog » furðulegt

Og þið haldið að ég sé slæm…
Tölvan mín er víðförult apparat. Fyrir utan það að hún var keypt frá Bandaríkjunum og send til Íslands hefur hún ferðast á ólíklegustu staði, þar sem mér þykir afar erfitt að skilja hana við mig.

Það vita það allir sem þekkja mig að ég er slæmur tölvusjúklingur. Tölvan er mér allt í senn; námstæki, skemmtimiðstöð, sjónvarp, útvarp, fréttaveita, minnisbók, geymslusvæði, upplýsingamiðstöð og dagbók. Að auki er ég búin að vera í tvö ár í skóla þar sem fartölvan var helsta hjálpartækið; maður fór með hana í skólann á hverjum degi, las úr henni námsefnið, skrifaði á hana verkefnin, fylgdist með nýjustu upplýsingum um námsframvindu, fékk skilaboð frá kennaranum um verkefni, sótti sér upplýsingar á netið og leitaði aðstoðar meðal samnemenda. Bifrestingar eru almennt vanir því að vera með sex útlimi: Höfuðið, tvo handleggi, tvo fætur og eina fartölvu.

Það má því segja að tölvan hafi verið mér meira og minna innan seilingar, síðustu tvö árin, og ég er vanari því en ekki að vera með hana á annarri öxlinni. Sem slík hefur hún fylgt mér eins og skugginn í daglegu lífi: Í skólann, á kaffihúsið, stöku sinnum í vinnuna, heim í Gunnarssundið, til Óskars, jafnvel í heimsóknir til vina þegar þannig ber undir. Ég hef farið með hana til útlanda nokkrum sinnum, jafnvel þó að ég viti ekki til hvers ég ætla að nota hana – bara því það er vani að hafa hana með.

Hún hefur líka verið notuð á ólíklegustu stöðum; eina herbergi hússins sem er algerlega fartölvu-frítt er klósettið. Ég hef setið undir henni í flestum stólum heima hjá mér, og ég hugsa að ég gæti málað línu á gólfið á þriðju hæðinni í Gunnarssundinu eftir minni, eftir því hvar hún nær þráðlausa netinu og hvar ekki – því routerinn er í kjallaranum. Ég hef kveikt á henni í flestum farartækjum sem maður getur látið sér detta í hug, meðal annars breskum Narrowboat – því auðvitað fór hún með í þá ferð.

Í stuttu máli sagt: Ég er tölvusjúklingur.

En í dag, þar sem ég gekk mín þungu spor frá Globus upp í Neředín þar sem ég á heima, með mörg kíló af matvöru á bakinu, varð ég vitni að manni sem er lengra leiddur en ég hvað þetta varðar. Þar sem ég gekk fram hjá blokkunum á leið á aðalgötuna fór nefnilega fram úr mér maður á reiðhjóli. Hann var með opna fartölvu á stýrinu, og var, að því er mér sýndist, að velja sér tónlist úr Winamp til að hlusta á.

Ég fylgdist stóreyg með honum hjóla eftir reiðhjólastígnum niður á aðalgötu, taka 3/4 af hringtorgi og beygja til vinstri niður í bæ þar sem hann hvarf úr augsýn – allt án þess að tölvan færi á flug.

Gott að sjá að maður er skárri en sumir…