Ferdalangur's Weblog » kvart og kvein

Höfuðverkir háskólastúdents…
Það getur verið ægilega gaman að vera háskólanemandi. Því fylgir náttúrlega takmörkuð ábyrgð, hvað það varðar að vinnutíminn er að miklu leyti sveigjanlegur, maður velur sér sjálfur að stórum hluta verkefni, maður er eingöngu ábyrgur gagnvart sjálfum sér og maður kemst upp með ýmislegt þegar maður er sjálfs sín herra.

Það eru hinsvegar ýmsir ókostir sem fylgja því að vera háskólanemandi:

1. Ákvarðanir:  Ég á nokkrar mjög skýrar minningar úr barnæsku – svona pínu minningabrot úr daglegu lífi. Ein þeirra er frá því að ég var fjögurra ára og fékk af einhverjum ástæðum að fara með pabba á náttfötunum út í búð. Það var náttúrlega mesta sportið þegar maður var lítill, sérstaklega þegar maður er einstaklingur með næstum sjúklega fóbíu gagnvart venju og rútínu eins og ég. Nema hvað að ég mátti velja mér eitthvað eitt nammi, ef ég man rétt, og ég gat ekki ákveðið mig. Pabbi var farinn að tvístíga óþolinmóður og það hefur örugglega verið fullt af öðru fólki að bíða, en ég bara vissi ekki hvað mig langaði mest í. Ég man alveg rosalega vel eftir þessu, af einhverjum ástæðum. Nema hvað að mér gengur ekkert betur að taka ákvarðanir tuttugu og fjögurra ára en þegar ég var fjögurra ára. Ég þarf að skrifa, að mér telst til, fimm ritgerðir/framsögur, og ég á að láta mér detta í hug efni þeirra allra. Ég hef aldrei verið sterk á svellinu í að láta mér detta eitthvað svona í hug, og er þegar komin með ákvarðanafóbíu. Aukinheldur eru flestar ritgerðirnar á skiladögum í lok desember, sem þýðir að ég verð að fara að hugsa um þetta ekki seinna en núna, ef ég ætla ekki að vera ein rjúkandi taugahrúa í jólafríinu.

Þar fyrir utan var verið að segja mér að ég eigi að vera búin að ákveða efni meistaraverkefnisins míns í lok Nóvember.

Og svo var verið að segja okkur að við verðum að setja algerlega fast í hvaða skóla við viljum fara á næstu önn og nú hefur komið í ljós að Ítalía er ekki eins góður kostur og ég hélt hún væri, og að Spánn er hreint út sagt frekar slæmur kostur, a.m.k. hafa nemendur sem fóru þangað ekki borið skólanum vel söguna. Svo nú veit ég ekki hvernig ég á að snúa mér í þessu – það væri gáfulegt að fara til Uppsala í Svíþjóð en gáfulegt er ekki það sama og spennandi – mig langar ekki baun til Svíþjóðar.

2. Mataræði og innkaup: Ég fór í búðina áðan og ráfaði um eins og glötuð sál… svona Hypermarkets fara alveg með mig. Vandamálið hér er ekki það sama og uppi á Bifröst; þar skipti mestu máli að kaupa ekki of mikinn mat til þess að ég næði ekki að borða hann, og að helst vera með plan fyrir alla vikuna hvað varðaði þá hluti sem höfðu takmarkaðan endingartíma. Hér er málið aðeins flóknara.

Ég hef hvorki ofn né örbylgjuofn sem dregur drastískt úr möguleikum mínum til að elda, sérstaklega skyndimat, en líka bara venjulega hluti eins og kjúkling eða franskar kartöflur. Að auki, ef ég elda of mikið af mat, þá get ég ekki hitað hann í örbylgjuofni. Uppi á Bifröst var ég vön að elda í nokkuð stórum hollum og frysta alla afganga. Hér er það ekki hægt – líka vegna þess að ég hef ekki frysti.

Eða. Reyndar hef ég frystihólf. Ég ætti að taka mynd af því, svo fólk geti hlegið. Það er nefnilega frekar… smátt í sniðum.

Sem náttúrlega leiðir mig að ísskápsvandamálinu. Ísskápurinn minn er lítill. Hann er svo lítill að ég þarf að fara fínt í matarinnkaupin með tilliti til rúmmáls umbúða. Ég myndi koma mjólkurfernu inn í hann… en bara meðan hún er ennþá lokuð, því ég myndi þurfa að snúa henni á hlið. Ég get ekki keypt tólf eggja-bakka. Þ.e.a.s. ef ég vil koma einhverju öðru inn í ísskápinn á sama tíma.

Þetta alltsaman gerir það náttúrlega að verkum að  stórinnkaup á þessu heimili eru ómöguleg, og þessvegna finnst mér eins og ég sé stöðugt í kjörbúðinni. Ég er reyndar stöðugt í kjörbúðinni – ég get ekki fryst brauð í litla frystihólfinu mínu, svo ég kaupi það yfirleitt ferskt sirka annan hvern dag. Sem er frekar pirrandi.

Annað sem er pirrandi er vatn. Eða drykkjarvörur, öllu heldur. Kranavatnið er drekkanlegt hér, en hinsvegar er klórbragð af því – kranavatnið í Brno var mun betra en kranavatnið í Olomouc. Svo ég er aftur farin að kaupa vatn í flöskum og bera það heim. Sem væri minna vandamál ef kjörbúðirnar væru einhversstaðar í grenndinni, en næsta búð er Globus Hypermarkaðurinn sem er svona tuttugu mínútna labb. Og svo þarf ég náttúrlega að burðast með þetta alltsaman upp á fjandans fimmtu hæð í lyftulausu húsi. Þannig að maður er kannski með sex lítra af vatni, 2 l fernu af eplasafa, tvo bjóra, 2-3 jógúrtdósir, sex egg og fjölmargt annað á bakinu, þrammandi upp stigana.

3. Þvottur: Í dag er ég uppiskroppa með bæði sokka og boli. Rauða flíspeysan mín þarfnast umferðar í þvottavélinni, og sama er að segja um eitt par af buxum – sem voru, eins og þið ef til vill munið, af skornum skammti til að byrja með. Ég fór í morgun í von um að fá þvottahúslykilinn lánaðan en það var einhver með hann í láni. Ég veit ekki alveg í hverju ég ætla í skólann á morgun. Ætli ég grafi ekki upp það skásta úr óhreinataushrúgunni. Ég held líka að það sé ein fín skyrta inni í skáp. Svo keypti ég nælonsokka áðan, svo sokkamálin geta haldið áfram að þróast eitthvað. Spurningin er hvort mér heppnist að fá lykilinn lánaðan á morgun? Og ef svo er, hversu langt er þá þvottaprógrammið á þvottavélinni? Ég þarf helst að þvo eina dökka og eina ljósa vél, en ég má ekki vera með lykilinn lengur en í tvo tíma í senn. Þetta var þægilegra á Bifröst – þar pantaði maður vélarnar fyrirfram og gat skipulagt heilan eftirmiðdag í þvottastúss. Þar gat maður líka pantað fjórar þvottavélar í einu ef manni sýndist svo, og þar með þvegið eina dökka, eina ljósa, eina rúmfatavél og einn suðuþvott, allt á sama tíma. Það var náttúrlega hellingsþvottur í einu – en þá þurfti maður heldur ekki að hafa áhyggjur af nærbuxnaskorti næstu þrjár vikurnar.

4. Pappírsflóð: Ég er ein af þessum manneskjum sem les með highlighterpennanum. Ég get lesið fagurbókmenntir af tölvuskjánum, en mér þykir þægilegra að hafa háskólatextana útprentaða svo ég geti skrifað á þá. Nema hvað að það krefst þess að ég prenti út greinar eða ljósriti þær, og þar af leiðandi þarf ég að vera vakandi fyrir því hvenær greinarnar detta inn á sameiginlega svæðið eða í þartilgerðar möppur á bókasafninu, hvað ég á að ljósrita hverju sinni, hvort ég á pening á ljósritunarkortinu mínu og hvar best er að prenta.

Aukinheldur komst ég að því í gær að ég get lifað í fjóra mánuði án þess að eiga ýmislegt, en heftari er ekki eitt af því sem ég get verið án. Pappírsflóðið var orðið svo yfirþyrmandi að ég keypti líka teygjumöppur. Nú er dótið mitt allt í fjórum möppum: Tékkneska, Þriðjudagur, Miðvikudagur og Fimmtudagur. Einfalt. Vonandi.

Ég er búin að skrifa rúmlega þúsund orð af hreinu væli. Úff, hvernig fer ég að þessu?

Þetta er alls ekki svona slæmt. Það er bara einhvern veginn auðveldara að skrifa um það sem pirrar mann dagsdaglega heldur en það sem er skemmtilegt – það sem er skemmtilegt er oft svo óáþreifanlegt. Þetta verður hinsvegar ekkert mál – jah, kannski ákvarðanirnar verði vandamál, en þær verða teknar, engu að síður.

Matargerðin er einföld. Ég þarf bara aftur að komast inn í rytmann sem fylgir því að versla frekar í litlu búðunum en stóru súpermörkuðunum. Ef ég fer í kjötbúð get ég alveg keypt eina kjúklingabringu eða 250 gr af hakki. Það krefst bara skipulagningar. Og í súpermörkuðunum er yfirleitt hægt að kaupa kalt pastasalat í dollum úr ostaborðinu á í kringum sextíu krónur íslenskar, sem duga alveg sem máltíð ef þær eru borðaðar með brauði og osti. Svo er líka mensa í næsta húsi, þar sem heit máltíð er yfirleitt á 60-100 krónur. Ég svelt ekkert.

Hvað þvottana varðar held ég að ég taki bara sama pól í hæðina og síðast: Ég þvæ boli og nærföt sjálf en fer með buxur og straufatnað í þvottahús. Það kostar lítið og er mun þægilegra en að vesenast í því sjálf. Sokka má, í neyðartilfellum, þvo í baðvaskinum. Asada í næsta herbergi gerir það mikið. Auk þess er alltaf hægt að nota nælonsokka í neyðartilfellum.

Ég er bara þreytt og pirruð eins og stendur. Og mér er illt í bakinu, því að tékkneskir koddar eru allt of mjúkir. Er að gæla við þá hugmynd að láta mömmu koma með minn eigin kodda til Krakow, en finnst það eiginlega einum of. Ég veit líka ekki alveg hvernig þetta verður um jólaleytið og hvert ég er að fara eftir jól. Eins gott að safna ekki of miklu drasli, ef vera kynni að ég þyrfti að drösla því öllu heim yfir jólafríið… úff.

Jæja, þetta er komið gott af skrifum. Held að ég sé ekki nógu skemmtileg hér. Ef þið viljið lesa eitthvað skemmtilegra mæli ég með blogginu hans Matta. Ég ætla að fara að klára greinina sem ég á að lesa fyrir  morgundaginn – á eftir fjórar heilar blaðsíður, hah.

Og svona í lokin, til að sanna að ég er bara í góðum gír:

Ég og Carolina frá Þýskalandi á Pegas í Brno, um þarsíðustu helgi.